Yfir 200 vefir hýstir hjá okkur

Vandaður nýr vefur fyrir 110.000 kr.

Sláðu inn lénið þitt og sjáðu nýja vefinn þinn eftir 1–2 mínútur, áður en þú borgar krónu. Faglegur vefur, sniðinn að fyrirtækinu þínu.

Ókeypis og án skuldbindingar. Ekki með vef? Byrjaðu hér

Tilbúinn á 5 virkum dögumHannaður fyrir símaÍslensk þjónusta
vefutlit3.vefmundur.is
Forsíða í Vefútliti 3
vefutlit2.vefmundur.is
Forsíða í Vefútliti 2

Svona virkar þetta

1

Sláðu inn lénið

Eftir 1–2 mínútur sérðu efnið af núverandi vef í nýju útliti, með ykkar merki og litum.

2

Pantaðu

Við notum efnið af gamla vefnum, eða þú sendir okkur nýjan texta og myndir. Ekki með vef? Þá byrjum við frá grunni.

3

Tilbúinn á 5 virkum dögum

Þú færð hlekk á nýja vefinn og hefur 15 daga til að biðja um breytingar á texta og myndum.

Þrjú útlit til að velja úr

Skoðaðu sýningarvefina eða sjáðu þinn eigin vef í hverju útliti. Sýningarefninu er skipt út fyrir ykkar texta og myndir.

Vefútlit 1

Vefútlit 1

Stórar myndir og góð kynning á þjónustunni. Hentar fyrirtækjum með mörg verk eða margar þjónustuleiðir.

Vefútlit 2

Vefútlit 2

Allt á einni síðu og símanúmerið alltaf sýnilegt. Hentar þeim sem vilja fá símtöl.

Vefútlit 3

Vefútlit 3

Rólegt og formlegt útlit. Hentar skrifstofum, ráðgjöfum og fagþjónustu.

Vandaðir vefir, mældir af Google

Við byggjum vefina þannig að þeir séu hraðir, aðgengilegir og tilbúnir fyrir leitarvélar. Svona mælir Google sýnisvefina okkar.

  • 96Hraði
  • 100Aðgengi
  • 100Bestu starfsvenjur
  • 100Leitarvélar

Mæling Google PageSpeed Insights á sýnisvefjunum okkar, af 100.

Hraður á öllum tækjum

Léttur vefur sem opnast hratt, líka í símanum.

Fyrir Google og gervigreind

Vefurinn er settur upp svo Google og ChatGPT finni ykkur og skilji hvað þið gerið.

Öruggur rekstur

Vefirnir eru hýstir á netþjónum okkar í ISO-vottuðum gagnaverum.

„Samstarfið var til fyrirmyndar, þjónustan fagleg og tímasetningar stóðust. Ég get því hiklaust mælt með þjónustu frá Vefmundi.“
Elísabet Einarsdóttir · fjarstod.is

Fólkið á bak við Vefmund

Á bak við Vefmund er Filmís, íslensk vef- og hugbúnaðarstofa sem hefur starfað frá árinu 2017. Í dag þjónustum við yfir 250 íslensk fyrirtæki með ýmsar tæknilausnir og hýsum yfir 200 vefi.

Ef eitthvað kemur upp geturðu alltaf hringt í okkur í 537-1717 eða sent póst á [email protected].

Innifalið í verðinu

Hýsing innifalin

Vefurinn er hýstur hjá okkur og hýsingin er innifalin í mánaðargjaldinu.

Dagleg öryggisafrit

Við tökum afrit af vefnum á hverjum degi svo ekkert tapast.

SSL skírteini

Örugg tenging (https) fylgir öllum vefjum.

Virkar í öllum tækjum

Snjallvefur sem aðlagar sig að síma, spjaldtölvu og tölvu.

Auðvelt að breyta sjálf/ur

Notendavænt viðmót og ítarleg kennslumyndbönd, svo þú getur breytt og bætt vefinn að vild.

Uppsetning

Við setjum vefinn upp með ykkar efni. Þú þarft ekkert að kunna á tækni.

Tilbúið útlit, sniðið að þér

Við byrjum á útliti sem er þegar hannað, prófað og virkar vel í síma. Svo aðlögum við það að fyrirtækinu þínu: litum, merki, texta og myndum.

Þannig færðu faglegan vef á broti af verði sérsmíðaðs vefs.

Nýr vefur

110.000 kr.

Án vsk · Tilbúinn á 5 virkum dögum

  • Engin binding
  • Hýsing og dagleg afrit: 4.990 kr. á mánuði án vsk
  • Við sjáum um uppsetningu
  • 15 daga yfirferð og lagfæringar innifaldar
  • Notendavænt viðmót og kennslumyndbönd
Fáðu ókeypis sýnishorn

Eða dreifðu greiðslunni: 11.000 kr. á mánuði í 10 mánuði (10 mánaða binding).

Þarftu eitthvað sérsniðið?

Vefverslun, bókunarkerfi, fleiri tungumál eða alveg sérhannaður vefur? Við smíðum líka sérlausnir. Segðu okkur frá verkefninu og við höfum samband með tilboð.

Fá tilboð í sérlausn

Spurt og svarað

Hvað kostar nýr vefur?

Uppsetningargjaldið er 110.000 kr. án vsk. Þú getur staðgreitt það, án bindingar, eða dreift því á 10 mánuði (11.000 kr. á mánuði) með 10 mánaða bindingu. Mánaðargjaldið er 4.990 kr. án vsk og innifelur hýsingu og dagleg öryggisafrit.

Hvað tekur langan tíma að fá nýjan vef?

Vefurinn er tilbúinn 5 virkum dögum eftir að við höfum fengið efnið. Þá færðu hlekk og getur beðið um breytingar í 15 daga.

Get ég fengið breytingar eftir afhendingu?

Já. Þegar vefurinn er tilbúinn færðu hlekk á hann og hefur 15 daga til að senda okkur athugasemdir. Við uppfærum texta, skiptum um myndir og bætum við myndum án aukakostnaðar. Nýir eiginleikar og fleiri síður eru verðlagðir sérstaklega.

Get ég hætt?

Já. Þú sendir uppsögn á [email protected] í síðasta lagi 5 dögum fyrir mánaðamót. Ef þú staðgreiddir uppsetninguna er engin binding. Þú færð allt þitt efni afhent: texta, myndir og innsendar fyrirspurnir.

Get ég breytt vefnum sjálf/ur?

Já. Kerfið er einstaklega notendavænt og ítarleg kennslumyndbönd fylgja, svo þú getur breytt og bætt vefinn að vild þegar hann er kominn í loftið.

Hvað ef ég er ekki með vef í dag?

Ekkert mál. Þú segir okkur í nokkrum setningum hvað fyrirtækið gerir og við búum til sýnishorn út frá því.

Get ég fengið sérsniðinn vef?

Já. Ef þig vantar vefverslun, bókunarkerfi, fleiri tungumál eða alveg sérhannaðan vef getur þú beðið um tilboð í sérlausn og við höfum samband.

Hver stendur á bak við Vefmund?

Vefmundur er rekinn af Filmís Hönnunarstofu slf., íslenskri vef- og hugbúnaðarstofu sem hefur starfað síðan sumarið 2017. Starfsfólkið hefur margra ára reynslu af vefhönnun og hugbúnaðarþróun.

Sjáðu nýja vefinn þinn áður en þú borgar krónu

Það tekur 1–2 mínútur og kostar ekkert.